Kvöldið fyrir skýrslu
Það er skrítið andrúmsloft í þjóðfélaginu þessar síðustu klukkustundir fyrir birtingu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. En hvað ætli verði í henni? Hverjir fá að kenna á því eða fær kannski einhver að kenna á því?
Davíð Oddsson sá sér a.m.k. ekki fært að vera á landinu þegar skýrslan lítur dagsins ljós. Spurning hvort að fleiri frammámenn úr íslensku stjórnmálalífi verði fjarri góðu gamni á morgun. Gaman verður að sjá hversu langt aftur rannsóknarnefndin horfir. Hvort hún komi til með að horfa eingöngu aftur til 2007 þegar Ríkisstjórn Geirs H Haarde tók við völdum eða mun hún fara alveg aftur til þess tíma þegar bankarnir voru einkavæddir til vina og vandamanna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks.
Án nokkurs vafa verður margt forvitnilegt í þessari skýrslu en það sem ég hlakka helst til að sjá er hvernig hún verður túlkuð. Hvort hún verði túlkuð misjafnlega af hverju stjórnmálaafli og þá hvernig. Gaman verður að sjá hvernig Hannes Hólmsteinn reynir að snúa sitt átrúnaðargoð Davíð Oddsson útúr nokkurri ábyrgð, þrátt fyrir tilveru hans í stjórnarráðinu og seðlabankanum.
Kvöld sunnudagsins 11. apríl 2010 er í raun hálfgert Þorláksmessukvöld, á morgun kl. 10:15 fáum við svo að opna pakkann sem nefndin útbjó handa þjóðinni.
