Þingmenn framtíðarinnar?
Þegar mér leiðist á ég það til að taka saman stjarnfræðilega leiðinlegar staðreyndir og velta þeim svo fyrir mér. Mér datt t.d. núna í hug að taka saman hversu margir þingmenn sem nú sitja á Alþingi eru í einhverri mynd1 á Facebook.
Tölurnar komu mér reyndar á óvart þar sem oft er talað um hversu afdankað og rykfallið lið situr á Alþingi... því hvorki meira né minna en 53 af 63 þingmönnum eða 84% af þingheimi öllum er sýnilegur öllum umheiminum á Facebook. Ef við skoðum þessar tölur svo eftir þingflokkum þá eru niðurstöðurnar eftirfarandi:

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar sem haldinn var liðna helgi í Garðabæ hefur líklega ekki farið framhjá neinum enda mikil umfjöllun um hann í fjölmiðlum landsins.
Það verður stór dagur hjá flestum á morgun, en hjá mér verður hann ansi fjörugur. Hann byrjar með því að þingmenn Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, verða gestir á vikulegu laugardagskaffi okkar í Reykjanesbæ. Ég geri fastlega ráð fyrir að það muni vara til að vera tólf á hádegi en þá er næst á dagskrá heimsendi!