Þegar skitið er upp á bak og náunganum kennt um
Satt bezt að segja þá svelgdist mér á Honey Nut Cheerios morgunkorninu mínu í morgun þegar ég rakst á virkilega ósmekklega fréttaskýringu sem gekk út á að Ásmundur, bæjarstjóri í Garðinum, grét yfir erlendum eigendum HS Orku og fullyrti að hluti af kaupverði lífeyrissjóðanna í HS Orku hefði farið í að endurgreiða lán til eiganda Magma, Ross Beaty. Spurning mín er þessi, hvernig er hægt að skíta upp á bak og benda svo á Steingrím J Sigfússon og kenna honum um herlegheitin?
Hvernig vogar fyrrum ísbílstjórinn sér að halda því fram að einhver hluti þessa harmleiks sé Steingrími J Sigfússyni eða ríkisstjórninni að kenna? Var það SJS sem seldi Hitaveitu Suðurnesja til einkaaðila? Var það SJS sem sveigði framhjá lögum og reglum og leigði nýtingarrétt auðlindarinnar til 130 ára? Nei aldeilis ekki, það voru engir aðrir íhaldsmennirnir á Suðurnesjum.
Áður hef ég bent á að Stóri Sannleikur sé duglegur við að nota smjörklípuaðferð Davíðs Oddssonar, ekki gæti verið að hann sé að beita félaga sínum og fyrrum starfsmanni til að dreifa athyglinni frá einhverju öðru?
Hvar er kísilverið?
Íslenska kísilfélagið ehf hafði frest út júní mánuð til að greiða væna summu til Reykjaneshafnar og var það eitt af grunnskilyrðunum í samningi RNH við lánadróttna sína. Nú er kominn 3. ágúst, Verzlunarmannahelgin að baki og enn hefur ekki sést króna! Getur verið að verkefnin deyji þegar Stóri sannleikur snerti á þeim? Getur verið að hann búi yfir einhvers konar touch of death?

Fyrir stuttu kom út rannsókn sem kanadíska fyrirtækið AptiQuant gerði til að rannsaka grein vafranotenda. Þar kom fram að notendur Opera eru vel yfir meðalgreind1 eða með heil 120 stig á meðan notendur Internet Explorer eru með skitin 80 stig. Notendur Google Chrome og Mozilla Firefox eru í efri mörkum meðalgreindar með 110 stig.
Allir virðast vera á einu máli um að það sé ótækt að banna múffusölur og aðra kökubasara hvort sem það er í gróða- eða góðgerðarskyni, skítt með lög og reglur þegar kemur að múffum. En ég get ekki sagt að ég sé sammála.
Eftir að hafa tekið þátt í pólitísku starfi síðan síðsumars árið 2008 hef ég lært margt og kynnst mörgu en eitt af því sem ég hef uppgötvað er ofnæmi mitt fyrir smjörklípum. Þá meina ég ekki gamla góða Smjörvanum heldur pólitískum smjörklípum líkt og þeirri sem bæjarstjóri vor, Árni Sigfússon, sullaði á vef Víkurfrétta undir yfirskriftinni „Geta ráðherrar haft jákvæð áhrif?“.
Samkvæmt Reuters fréttastofunni hefur kviðdómur, í réttarhöldum um meinta spillingu fyrrum ríkisstjóra Illinois fylkis í Bandaríkjunum, fundið Rod Blagojevich sekan. Ástandið var víst svo slæmt í réttarhöldunum að dómarinn var á endanum að skipa verjanda Blagojevich að fá skjólstæðing sinn til að þegja.