Nokkrar myndir frá helginni
Mig var farið að langa að prófa einhverjar nýjar græjur með myndavélinni minni og þá er aðeins eitt að gera... selja eitthvað af því gamla. Ég dróg því upp eina gamla Prime linsu sem ég átti í fórum mínum en hafði lítið notað og auglýsti hana til sölu. Á tveimur dögum tókst mér að selja hana og þá var ég kominn langleiðina í að fjármagna eitthvað nýtt.
Ég endaði á því að fjárfesta í einni Canon 50mm F2.5 Compact Macro linsu hjá Sense í Kringlunni. Ég var í rauninni að renna svolítið blint í sjóinn þar sem ég rakst bara á þessa linsu fyrir slysni en hún hefur þó virkilega sannað sig í einu og öllu.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir sem ég tók með henni um helgina (og reyndar ein tekin með Sigma 10-20mm sem er enn í mestu uppáhaldi hjá mér...





