Hefur Vigdís „Palin“ Hauksdóttir aldrei heyrt um jólaguðspjallið?

on .

Vigdís Hauksdóttir á ircinu...Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar, lagði fram nokkrar spurningar, á dögunum, til efnahags- og viðskiptaráðherra?  Fyrstu tvær spurningnar eru eftirfarandi:

  1. Hvers vegna er Hagstofa Íslands að taka saman manntal og húsnæðistal miðað við árslok 2011?
  2. Er taka manntalsins og húsnæðistalsins liður í umsókn Íslands að Evrópusambandinu?

Það er ótrúlegt að hugsa til þess að svona mikill samsæriskenningasmiður eigi sæti á Alþingi.  Það er ekki eins og manntöl hafi ekki verið framkvæmd um aldir, sbr. jólaguðspjallið:

En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.