Skrítin forgangsröðun Reykjanesbæjar

on .

Mynd: Oli Haukur http://www.flickr.com/photos/olihaukur/Í síðastliðinni viku sat ég minn fyrsta bæjarstjórnarfund og fór ég nokkrum sinnum upp, m.a. til að sækja upplýsingar.  Eitt af því sem ég spurði formann Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar út í var hvað starfsmaður Atvinnusviðs Reykjanesbæjar væri að sýsla um þessar mundir til að hámarka fjárfestingu Reykjaneshafnar í Helguvík, en fyrir þá sem ekki vita er starfandi atvinnufulltrúi hjá ATH-sviðinu.

Því miður var fátt um svör og þótti mér leitt að heyra þegar bæjarstjórinn svaraði því svo að starfsmaðurinn væri meira í öðrum verkefnum á skrifstofunni.

Ég komst því ekki hjá því að hugsa út í það að á undanförnum mánuðum og árum hafa valdamenn hér í bæ verið afar háværir í gagnrýni sinni á ríkisvaldið en hafa svo lítið eða ekkert gert í málunum sjálfir.

Vissulega er búið að setja á stofn Hekluna, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja.  En þess má geta að fjármagnið fyrir það verkefni kemur frá Iðnaðarráðuneytinu! Auk þess sem slík skrifstofa var starfandi hér á árum áður, en fljótlega eftir að nýr bæjarstjóri tók við var skrifstofan lögð niður og atvinnumálin falin inn í rekstri Reykjaneshafnar, sem á víst nóg með sitt…

Alltof lengi höfum við gleymt okkur í að hugsa um álverið í Helguvík og fyrir vikið hefur öll önnur vinna fjarað út, þangað til kreppan skall á.  Ef bæjaryfirvöld hefðu verið aðeins undirbúnari þegar kreppan skall á, rétt eins og þau hefðu mátt vera nokkrum misserum áður þegar Bandaríkjaher kvaddi á haustmánuðum 2006.  En á stefnu meirihlutans í Reykjanesbæ má einna helst lesa að best er að vera vitur eftirá og treysta á að ríkið reddi okkur.

Mynd: Óli Haukur - http://www.flickr.com/photos/olihaukur/