Ríkisstjórnin sem hatar Suðurnesin en er samt að beila út RNB
Fréttablaðið sagði frá því að íslenska ríkið ætlaði sér að kaupa jarðhitaauðlindir þær sem Alterra (Magma/Geysir Green) leigir til sín, en þær eru alfarið í eigu Reykjanesbæjar.
Menn fagna því að þarna sé verið að koma jarðhitaauðlindum í eigu ríkisins og kjósa að horfa framhjá því að auðlindirnar voru þegar í eigu hins opinbera í gegnum Reykjanesbæ. Einnig sleppa menn alfarið að nefna að auðlindirnar, sem nú eru leigðar út, eru bundnar í leigusamning við Alterra til 65+65 ára. Þ.e. núverandi leigusamningur gildir til 65 ára og er ákvæði í honum sem segir að leigutaka sé í sjálfvald sett hvort hann kjósi að framlengja leigusamningnum um önnur 65 ár.
En snilldin fyrir ríkið virðist að mestu vera að þeir borguðu bara með skuldajöfnun því fjármagnstekjuskattur sem Reykjanesbær skuldaði vegna sölunni á HS Orku á sínum tíma var enn ógreiddur, og líklega dugar þessi sala ekki til að afskrifa hann með öllu.
Enn einn stórfurðulegi og óskiljanlegi kaflinn er því skrifaður í þessu máli...
