Ríkið gefur og ríkið tekur
Sá áróður að á ríkið hafi ekkert gert á Suðurnesjum hefur verið hávær um langa tíð og er þá oftar en ekki skautað framhjá grunvallaratriðum sem henta ekki boðskapnum.
Vissulega hefur dregið úr þjónustu hins opinbera á Suðurnesjum, líkt og alls staðar á landinu, en við megum ekki gleyma því sem bæst hefur við. Samtakamáttur þingmanna Suðurkjördæmis skilaði t.d. Keili inn á fjárlög í fyrsta skiptið í fyrra og leystist þar með vandinn um framtíð þeirrar flottu menntastofnunar.
Annað gott dæmi um stuðning ríkisins við menntun á Suðurnesjum er frá því í dag en Víkurfréttir segja frá því á fréttavef sínum að Mennta- og menningarmálaráðuneytið hafi gert samning við Fisktækniskóla Íslands sem starfræktur er í Grindavík.
Auðvitað er ekki allt svona æðislegt því Víkurfréttir sögðu líka frá því í dag hvernig Heilbrigðisstofnun Suðurnesja ætlar sér að ná fram frekari sparnaði og eru margar þeirra leiða dæmigerðar... það er alltaf mötuneytið og ræsingarnar sem eiga að sparast.
Að lokum vil ég enn og aftur minna á að Kadeco er í 100% eigu íslenzka ríkisins og skal því haldið til haga að það góða starf sem þar er unnið er allt í boði hins opinbera.
