Skáldið Guðni Ágústsson
Guðni Ágústsson má muna fífil sinn fegurri enda eitt sinn á meðal vinsælustu stjórnmálamanna Íslands en nú verður hann að treysta á þá örfáu bittlinga sem Framsókn hefur úr að moða. Hann skrifaði grein í Morgunblaðið sl. föstudag sem er það skemmtilegur skáldskapur að mér finnst það sóun ef hún birtist ekki víðar en í föstudagsmogga sem 15-20 manns lesa. Ég stelst því til að birta skáldskapinn hér öðrum til skemmtunar, ég vona að enginn reiðist mér :)
,,Leikstjórinn mikli,“ Össur Skarphéðinsson
Eftir Guðna Ágústsson
„Ég er enn á lífi í pólitík af því að ég er svolítið ,,paranoid“ í nasavængjunum.“
Þessi orð eru höfð eftir vini mínum Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra þar sem hann lýsir sjálfum sér í rannsóknarskýrslu Alþingis. Ísland hrundi og nokkru síðar voru allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar fallnir eða farnir, nema Össur og heilög Jóhanna. Aðeins þau af ráðherrunumí ríkisstjórn Geirs H.Haarde lifðu búsáhaldabyltinguna af. Össur er mikið ólíkindatól og hefur lifað tímana tvenna. Hann er samt sá sem stýrir Samfylkingunni og heldur henni með klókindum við völd. Össur hefur fengið margar skrokkskjóður í pólitík, verið felldur sem formaður Samfylkingarinnar.
Mælist ekki hafa mikið traust meðal almennings en vitsmunirnir í nasavængjunum færa honum og flokki hans nýja og nýja sigra. Hann færir einum líf og öðrum dauða í pólitík.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er í dag mestur örlagavaldur á Íslandi á vettvangi stjórnmálanna.
Össur hefur nú látið af öllum stráksskap, bloggar ekki á nóttunni með sínu beitta stílvopni.
Hann sefur vært og vinnur með sínum húskörlum á daginn. Hann kann á fjölmiðlana og er alls staðar með sambönd í öllum flokkum og alls staðar. „Ég er aumur starfsmaður á plani,“ er viðkvæðið sé hann spurður um völdin. Nú situr hann í Hliðskjálf með strákaskara um sig og er drottnari stórra tíðinda í pólitík.
Össur hjarta og heili
Nú skulum við fara yfir nokkra atburði síðustu ára. Össur tók við Samfylkingunni og sem formaður leiddi hann hana í gegnum stærsta sigur flokksins árið 2003 með 31% fylgi á landsvísu. Össur var svo sleginn af vegna þess að kratarnir treystu honum ekki. Enda útnefndu þeir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur forsætisráðherraefni sitt í kosningabaráttunni og drógu hana úr stól borgarstjóra og komu henni inn á Alþingi. Samfylkingin var svo í fjögur ár í stjórnarandstöðu undir forystu Ingibjargar sem skilaði flokknum aðeins 27% fylgi árið 2007. Össur er enn lífið í öllu skipulagi og kænsku Samylkingarinnar, hann er bæði hjarta og heili flokksins. Össur heldur húskarla sem hann elur vel og notar til verkanna.
Geir H. Haarde svikinn
Eftir kosningarnar 2007 var það Ingibjörg Sólrún sem vildi með Sjálfstæðisflokknum í stjórn gegn öllu tali um höfuðandstæðing sinn. Baugsstjórnin var ríkisstjórnin nefnd af því að hið mikla viðskiptaveldi Baugs boðaði þessa stjórn og barðist fyrir henni í kosningabaráttunni.
Þarna var lánið með Össuri, hann vildi að vísu vinstristjórn með Vinstri grænum og Framsókn. Hann hafði skömm á Baugsmönnum, þeir ráku bróður hans úr starfi. Örlögin urðu þau að Ingibjörg Sólrún hvarf af vettvangi og hætti í pólitík, bæði vegna hrunsins og veikinda. Samfylkingin sveik Geir H. Haarde á tröppunum heima hjá sér; mikil pólitísk kænska í beinni útsendingu. Össur hélt Sjálfstæðisflokknum þá uppi á snakki meðan hann bjó til brú yfir til Vinstri grænna með hlutleysi Framsóknarflokksins.
Jóhanna Sigurðardóttir var lykillinn að framhaldslífi Samfylkingarinnar og Össurar. Jóhanna fór þá langt á heiðarleikanum sem hefur umleikið hana í pólitík. Jóhanna er þeirra ,,Maó“ og hefur reynst sem slík, þótt hárin gráni og dagarnir líði.
Jón Gnarr himnasending
Þegar kom að borgarstjórnarkosningunum 2010 var úr vöndu að ráða til að koma Hönnu Birnu, vinsælum borgarstjóra, fyrir kattarnef og samstarfi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins frá. Spurning vaknar nú hvort Guðmundur Steingrímsson hafi verið flugumaður í því verki? Guðmundur yfirgaf flokk feðra sinna og gekk Samfylkingunni á hönd sem varaþingmaður í kosningunum 2007. Fóstbræður Guðmundar eru og voru Dagur B. Eggertsson og Róbert Marshall. Hægri hönd Össurar er aðstoðarmaðurinn Kristján Guy Burgess, vinur Dags B., samböndin eru augljós. Guðmundur svissaði svo yfir í Framsókn 2009, þar var hann þögull þingmaður í tvö ár, lagði lítið til málanna. Fyrsta verk Guðmundar þar var þó að koma Óskari Bergssyni, mjög vaxandi stjórnmálamanni, frá. Það gerði hann með fólki sem átti ESB að trú. Jón Gnarr var svo himnasending Össurar og Dags B. Eggertssonar, fóstbróður Guðmundar Besta, eða sköpunarverk þeirra. Hann passaði inn í rafmagnað andrúmsloftið og Samfylkingin náði völdum í Reykjavík í gegnum hann. Sé pólitísk skoðun Gnarrmanna könnuð eru flestir lykilmennirnir brennimerktir Samfylkingunni á enni og brjóst og margir flokksbundnir þar á bæ. Reykjavík vannst, hvers vegna skyldi ekki landið vinnast með slægð líka árið 2013?
Hverjir sækja Guðmund út í heiðina?
Nú gerir Össur sér grein fyrir því að Vinstri grænir eru að verða bein og roð eftir samstarfið og svikin kosningaloforð. Flokkurinn klofinn, Steingrímur J. glottir við gaflaðið.
Vinstri grænir fýla grön yfir fóðri kratanna og spyrja sig hvernig þeir sleppi lifandi til baka. Ögmundur Jónasson er tilbúinn að halda á ný út á eyðimörkina með þá trúuðu, enda maður sannfæringarinnar og útifundanna. Hlutverki Guðmundar Steingrímssonar er lokið í Framsóknarflokknum, nú er hann genginn útí heiðina og enn ekki áttaður.
Hann þykist sjá nýjan flokk í hillingum. Þennan flokk hafa Össur og hans kórdrengir verið að hanna. Samfylkingin kom mörgum mönnum inn á stjórnlagaþingið, þar liggur sá kjarni sem nýi Miðjuflokkurinn verður byggður upp úr. Össur mun hins vegar senda menn á móti Guðmundi út í heiðina og þokuna úr Samfylkingunni, það er hluti af leikritinu.
Þar verða trúverðugir menn notaðir á borð við Björgvin Sigurðsson eða Róbert Marshall eða hana Kristínu Heiðu Pé Helgadóttur.
Mikilvægt að þetta fólk gangi til liðs við Miðjuflokkinn og svo nokkrir ,,stjórnlagar“ og svo á Jón Gnarr að verða svona eins og guðfaðir nýju hreyfingarinnar. Þessi Miðjuflokkur er nefndur ,,Kaffelatteflokkurinn“ úr 101 Reykjavík, hann er samsuða samfylkingarmanna og völdin halda á landsvísu.
Mörður eignast tvífara
Össur veit að Samfylkingin fær aldrei nema 20% fylgi 2013. Jóhanna Sigurðardóttir farin og sennilega er verið að máta Lúðvík Geirsson sem arftaka og krónprins, gott andlit. Og drengur góður eins og Jóhanna.
En foringinn Össur öskrar úr hlátri í aftursætinu, þetta plott er líf hans og yndi fyrir utan ESBtvískinnunginn. Með svona leikfléttu ætlar hann að skapa nýjan flokk með 15 til 20% fylgi og Samfylkingin heldur völdunum 2013 til 2017. Mörður Valgarðsson hefur eignast sinn tvífara eftir eitt þúsund ára hlé. Mörður var slungnastur Njálumanna. Össur er langslungnasti valdapólitíkus okkar daga.
