Hin mörgu lög landsfundar

on .

 

Á föstudag var landsfundur Samfylkingarinnar settur með pompi og prakt.  Mikið var um dýrðir, Ungir jafnaðarmenn minntust félaga sinna sem féllu í voðaverkunum í Noregi í sumar og var ekki einn gesta setningarinnar ósnortinn eftir þá athöfn.  Að því loknu fór formaður flokksins og forsætisráðherra vor, Jóhanna Sigurðardóttir, yfir víðan völl.

Þegar kórsöngurinn þagnar og ljósin eru kveikt, þá hefst fjörið sem margir flokksfélagar lifa fyrir.  Þarna hittast jafnaðarmenn frá öllum landshornum og ræða sig niður á niðurstöðu í öllum málefnum sem snerta land og þjóð.

Þótt formaður og varaformaður flokksins hafi verið sjálfkjörnir þýðir það þó ekki að engin spenna sé þegar kemur að kosningum á fundinum því barátta var um stöðu ritara flokksins í dag þar sem Bergvin Oddsson tók slaginn á móti Helenu Karlsdóttur, sitjandi ritara.  Einnig ber að geta þess að Hilmar Kristinsson, fyrrum formaður Uglu – ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum, er í framboði til gjaldkera ásamt Vilhjálmi Þorsteinssyni.  Utan við þessi framboð eru að sjálfsögðu hin fjöldamörgu framboð til framkvæmdastjórnar, flokksstjórnar o.fl. fjörið er því á göngum Hlíðarenda fyrir mörgum þar sem bræðralög eru svarin eins og vant er í kosningum.

Það verður því spennandi sunnudagur sem færir okkur niðurstöður málefnanefnda, kosninga ásamt loka þessarar erfiðu en stórskemmtilegu helgi.