Íbúafundir – undarleg tækling á lýðræðinu
Í gærkvöldi mætti ég á minn fyrsta íbúafund. Hingað til hafði ég alltaf verið vant við látinn og því ekki getað komist, þó ég hafi nú reyndar lagt við hlustir á vef Reykjanesbæjar. En mér fannst þetta frekar mögnuð upplifun að mestu leiti. Fyrirkomulagið var einfalt, þ.e. bæjarstjóri vor hélt tæplega klukkustundarframsögu um allt það dásamlega og dýrðlega í Reykjanesbæ og útskýrði fyrir okkur fundargestum meira að segja að skuldastaða Reykjanesbæjar væri alls ekki svo slæm því slíkar upphrópanir ættu fyrst og fremst rætur sínar að rekja í andstyggð og illt innræti þeirra sem voga sér að gagnrýna.
Ég gat þó ekki annað en hlegið þegar hann hafði farið ítarlega í gegnum allar eignir bæjarins og hljóp svo á 10 sekúndna hundavaði yfir skuldirnar sem voru með svo smáu letri á glærunni og í þokkabót var bakgrunnurinn þar mun dekkri en á bakvið eignirnar svo engin leið var til að sjá hvað þar stóð! Því endaði með því að ein konan í salnum rétti upp hönd og óskaði kurteisilega eftir því að glæran yrði löguð svo hægt væri að sjá hvað stæði í skuldadálknum – þá tók Árni okkar upp á því að lesa upp alla skuldasúpuna og virðist lítt glaður á eftir enda mikil lesning.
Það sem mér þótti svo merkilegra eftir að framsögu lauk var að engin leið var að leggja fyrirspurnir fyrir bæjarstjórann heldur var þeim ca. 15 almennu íbúum sem þarna voru komnir dreift á 4-5 mismunandi borð innan um ca. 20-25 starfsmenn og fulltrúa Reykjanesbæjar svo fundurinn var merkilega útþynntur á mettíma og því engin leið fyrir nein óþægindi að rata til Árna... er þetta ekki sniðugt? J
Ríkið sveltir Suðurnesin en mokar þó hingað fjármunum
Eitt þótti mér standa upp úr fram yfir annað í framsögu bæjarstjórans og það var að þegar hann fór yfir Hitaveitumálið í grófum dráttum þá nefndi hann að ríkið hafi fengið 7,6 milljarða fyrir sölu á sínum hlut í HS, svo muldraði hann að hann hafi nú verið að vonast til að þeir peningar myndu skila sér hingað á svæðið en það hafi nú lítið farið fyrir því...
Mér brá, hreint út sagt. Ég hélt að hann hafði þroskast á undanförnum mánuðum og lært að aum neðanbeltishögg eru ekki rétta leiðin til að láta mann líta vel út. Svo fór ég að fylgjast með þegar hann fór að tala um hin ýmsu úrræði af ýmsu tagi og ég hjó aldeilis eftir því hversu margt er í gangi og að fara af stað hér á svæðinu sem er einmitt komið til af hálfu íslenska ríkisins. Má þar nefna helst undirgöng við Grænás (Vegagerðin), allt starf Kadeco (Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar) er á fjárlögum Fjármálaráðuneytisins, Einkasjúkrahúsið á Ásbrú er runnið undan rifjum Kadeco, möguleg 250 sumarstörf fyrir 16-18 ára verða greidd af Vinnumálastofnun (Félagsmálaráðuneytið), opnun gamla Olíuvegarins frá Reykjanesbraut og niður í gegnum Nikkelsvæðið (Vegagerðin)...
Hvað ætlar svo Reykjanesbær að gera?
Jú eitt hringtorg, lagfæringar á örstuttum götubút á Hafnargötu, gróðursetning o.fl. smálegt... Helvítis ríkið hvað?!?
