Facebook markaðssetning, hvað skilar sér?
Ég velti því fyrir mér hversu vel svona guerrilla markaðssetning skilar sér þegar öllu er á botninn hvolft. Fyrirtæki í öllum geirum virðast sjá sig knúin til að fara í gang með Facebook share leik til að laða að sér sem flesta áhangendur, en til hvers? Ekki heldur Karen Millen að markhópurinn sem hefur ekkert betra að gera en að deila FB síðunni þeirra sé svo sterklega efnaður að hann hafi efni á að versla hjá þeim?
Ég skil vel þá sem taka þátt í svona leikjum, það er alltaf skemmtileg tilhugsun að fá mikið fyrir mjög lítið, en eins og svo oft áður þá er búið að eyðileggja þessa tegund markaðssetning fyrir næstu 1000 árin.
Ég biðla því til allra minna Facebook vina, plís viljið þið hætta að segja mér hvað ykkur langar í iPad... farið bara og kaupið ykkur iPad ef ykkur vantar hann, þetta eru fínar græjur.
